margur er knár þótt hann sé smár

jó vats opp

26.09.2008 20:21:12 / Fjóla

Mega krútt :)

http://www.youtube.com/watch?v=adYbFQFXG0U 

Fær mann svona aðeins til að hugsa hverjir skipta máli :p

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 17:06:49 / Fjóla

DK ...

Vá er þessi snjór eitthvað grín eða?! Þetta var nú ekki svona í Danmörku, þar var sko sól og hiti!! Ég skrapp í 11 daga ferð til Horsens að heimsækja Tinnu og Bryndísi sem var mjög gaman, þær eru nottla orðnar rólegar húsmæður en það var þó eitt og hálft djamm:haha: það fyrra var með Tinnu, hún var að fagna próflokum, það var singstar og svoleiðis gaman. Hitt kvöldið kíkti ég og Bryndís út eftir að hafa farið á voða fínan steikhússtað! Þess á milli bara chilla og verslað smá. Skruppum í sund og fórum til Arhus einn daginn! Já svo fór ég líka í bíó á Bee Movie, jújú og með dönsku tali þannig að ef einhver getur sagt mér um hvað hún er þá er það vel þegið hehe:$ Já fínasta ferð en endaði þó þannig að ég þurfti að ferðast heim í 8 tíma í lest og flugi með 39 stiga hita og það var ekki gaman. Og er því ekki búin að æfa né vinna alla vikuna, vá hvað maður er latur sko neee:!: ... já ætli helgin verði þá ekki bara róleg fyrst maður er búin að vera svona slappur:cry:

Reykjavíkurmótið byrjað og leikur í kvöld við Fylki, verð sennilega ekki með ... ohh það sem er alltaf svo gaman að spila við Fylki ... hmm wonder why:haha:

Svo nálgast bara í afmælið mitt, já Hlín maður eldist bara og eldist og mikið er það nú svakalega gaman:haha::haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 23:55:29 / Fjóla

Kúl!

Kannski maður setji inn svona eins og eina færslu ... til að láta vita af sér:)

Í dag snýst lífið um að djamma, vinna, djamma, djamma og já fótbolta kannski! Helgin núna var t.d alltof dýr. Ég týndi töskunni minni með snyrtidótinu mínu og húslyklum og endaði þetta skemmtilega kvöld þannig að ég þurfti að bíða eftir kalli til að koma og opna fyrir mér mitt eigið húsnæði og borga honum 6000 kall fyrir, ekki sátt. Ég spurði hann hvort það væri mikið að gera í þessum bransa og hann sagði að fólk væri mikið í því að týna lyklum ... hmm kannski maður leggi bara þessa starfsgrein fyrir sig hehe:) Mist dró mig í gegnum hálfa Rvk þar til ég ákvað að snúa við og bíða í taxaröðinni. Svo "rændi" ég gamla vinnustaðinn minn um daginn, fer ekki nánar út í það:haha: Svo er það bara Palli á föstudaginn, þar sem ég er að reyna að draga alla á ... þannig að þeir sem vilja koma og ég hef ekki talað við endilega komiði;)

En maður má ekki tapa sér í gleðinni, jólin eru jú eftir 7 daga og ég á eftir að gera nánast allt, þá er ég að tala um að þrífa, skreyta og baka ... hehe nei kannski ekki alveg að baka! Þarf svo að kaupa gjafir, þannig að þeir sem fá enga pakka frá mér þá er það vegna þess að ég er bara of upptekin af sjálfri mér þessa dagana hehe

Svo er planið að kíkja á Bryndísi og Tinnu til DK í janúar ... það verður sweet ... vikuferð:haha:

Ok þetta var nú meira bullið ... later :!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 10:07:10 / Fjóla

Nýjar myndir

Halló!:)

Vildi bara segja að það eru komnar nýjar myndir frá sumrinu inn í "myndir II" annars nenni ég ekki að segja neitt meira nema eitt og það er að ÉG ER BIKARMEISTARI ;)

sjá þessa boltatækni eins og hann Ivano sagði :)

sigurinn í höfn (minn fyrsti stóri:)

þessi kemst sko ekki neitt :)

vá þetta var snilldin ein, og hún hélt áfram langt undir morgun;)

ciao


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 23:15:30 / Fjóla

Tíminn líður hratt ... á gervihnattaröld:)

Mikið er tíminn fljótur að líða, ég er ekki að nenna þessu bloggstandi lengur eins og kannski sést:$ En það hefur ýmislegt verið að gerast undanfarið! Ég hef ekki djammað eins mikið og ég hef að undanförnu lengi lengi, ég var meidd í byrjun sumars og það má segja að ég hafi notfært mér það og svo einnig helgarnar að undanförnu;) ... bara gaman en nú kemur aftur smá pása í því! Fór í brúðkaup hjá Önnu og Robba sem var ekkert smá gaman og hún var gæsuð af okkur helgina á undan, hitti lið sem ég hef ekki hitt lengi eins og Geirlaugu og Röggu. Já það eru víst fleiri að fara að gifta sig, Nonni búinn að fara niður á skeljarnar og biðja hennar Hiddu sinnar og svo fékk ég símtal áðan að Biggi var að biðja Bryndísar og það er víst brúðkaup eftir 9 daga þar sem þau eru að flytja til Danmerkur eftir 2 vikur, gaman að því ég vona samt að þau komi heim eftir 2 vikur ... það þarf ekkert að búa lengur þar en það:haha:

Fór í rafting með vinnunni um daginn og það var helvíti gaman ... alltaf er maður jafn heppin, hrinti ÓVART nýja launastjóranum út í ánna ... hélt sko í alvörunni að þetta væri önnur og það má segja að mér hafi aldeilis brugðið þegar ég sá hver þetta var ... hún er nebbla nýbyrjuð en þá er hún allavega búin að ná að kynnast mér:^)

Í gær var 10 ára grunnskólareunion og það var einstaklega gaman, hef ekki hitt þetta fólk í 10 ár og sumir voru ekkert breyttir:!: Við skoðuðum skólann okkar og fórum í ratleik um hverfið áður en haldið var í salinn. Sumir komu bara nokkuð á óvart (örugglega ég líka), mér fannst mjög gaman að hitta alla en sérstaklega má segja að það hafi verið gaman að hitta Skúla og Eyrúnu þar sem við vorum góðir vinir á yngri árum ... ;) Svo fórum við í bæinn og þetta heppnaðist einstaklega vel:$

Fékk inn í báða skólanna, Íþróttaakademíuna og sálfræðina ... ég valdi sálfræðina og er farin að hlakka/kvíða pínu fyrir8|:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:58:45 / Fjóla

Orðin stúdent :)

Vá ég var að deyja úr stressi í dag að skólinn myndi hringja í mig og segja mér að ég hafi fallið í einhverju, ég var ekki að meika aðra lærdómshelgi og hvað þá að borga 17.000 kr fyrir endurtektarpróf ... nú er það allt á bak og burt því skólinn hringdi ekki í mig. Reyndar þá hringdi ég í skólann til að tékka hvort þeir höfðu nokkuð gleymt mér en svo var ekki ... nei nei bara útskrift á miðvikudaginn ... ekkert smá gaman! Það var sko alveg þess virði þessi langa pása mín, ég eignaðist ódýra íbúð og hætti að falla (greinilegt að maður var ekki að nenna þessu þarna í denn en tók núna 2 ár straight og náði alltaf öllu)! Nú kemur bara pressa hvað maður á að gera í framhaldinu8|

Við erum byrjaðar að æfa á grasi og það eru 6 dagar í fyrsta leik, byrjum í Kópavoginum. Það er komin spenna fyrir sumarið!! Ég er líka byrjuð að vinna, sem er fínt, gott að koma heim og þurfa ekki að fara að læra8) ... góð tilbreyting þar til maður fer aftur í skólann!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 20:17:17 / Fjóla

Ég bara spyr ???

Ég meina það eiginlega, hvað er að fólki. Ekki nóg með það að ég hafi verið rænd úti á Portúgal ... heldur þá fór ég á Sólon á föstudaginn og nýja jakkanum mínum sem ég keypti í útlöndum og var alveg að springa af gleði með VAR TEKINN, ég er svo brjáluð. Drullist til að skila dótinu mínu helvítin ykkar ... já einmitt frekar bitur sko!!!

En það var nú samt líka gaman á föstudaginn, partý heima hjá Bryndísi og svo var farið í bæinn, semsagt á Sólon! Ég ætla að segja að mér hafi liðið alveg 5 ÁRUM YNGRI á djamminu, Hlín ertu að fatta þetta hehe??

Bætti við nokkrum myndum í safnið í "myndir II" :D

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 18:26:51 / Fjóla

Gott að vera komin heim :)

Jæja þá er maður komin heim frá Portúgal og við tekur skóli, próf og vinna (já og tryggingarvesen vegna innbrotsins í Portúgal, þetta er ekkert nema vesen og þar sem að ég er frekar busy manneskja þá má ég ekkert vera að því að standa í þessu). Ég var nú búin að skrifa færslu sem birtist ekki þannig að ég nenni ekki að skrifa allt aftur.

Ég var bara að setja inn nýjar myndir í "myndir II" ... látum þær tala sínu máli ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 22:55:15 / Fjóla

Raendar i Portugal

Tad var brotist inn i husid okkar i Portugal og ollu verdmaeti stolid, vid vorum 6 saman i husi! Eg missti NYJA simann minn, ipod og dvd myndirnar minar ... eg er svo pirrud, eda eg var tad allavega, tad gekk agaetlega vel hja loggunni i dag. Vid vorum ad djamma og hafa rosa gaman i gaer og svo kemur tetta fyrir ... Vid erum ad jafna okkur og aetlum ad enda ferdina vel.

Ekki meira i bili ... bless bless


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 01:40:02 / Fjóla

Komin í gírinn :)

People people ég er búin að finna djammneistann aftur ...

I´m back :haha:

Djammlausa tímabilinu mínu er lokið ...

(ohh og verst að það er að koma sumar þegar ekkert má gera):!::!: við finnum út úr því.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 18:35:36 / Fjóla

Rétt að skreppa í kuldann áður en ég fer aftur :)

Jæja þá er önnur Portúgalsferðin búin að maður er bara rétt að kíkja heim til að fara á árshátíð í vinnunni, mæta í nokkra tíma og spila einn leik sem er á eftir við Stjörnuna ... já snjórinn sjokkeraði mann aðeins þannig að ég ætla bara að drífa mig aftur út í sólina ... sweet:) Æfingarferð með KR og það verður sko gaman hjá okkur!!!

Annars var ég bara að setja inn nýjar myndir af árshátíðinni og Algarve (þær eru samt ekkert svo margar en það verða fleiri boltamyndir eftir næstu ferð)! 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 23:51:57 / Fjóla

Bara nokkuð sátt sko

Já ég verð nú að viðurkenna að síðustu dagar hafa nú verið aldeilis ánægjulegir! Smá viðbót frá síðustu færslu en þá var maður bara valin í aðal bláa liðið og fer ég til Portúgals í 10 daga, já maður var farin að halda að maður myndi ekki ná því en gamla spýtti í lófana:haha:

svo kemur maður heim í 8 daga og fer svo aftur til Portúgals en þá í æfingarferð með Stórveldinu í 1 viku, það má því segja að maður verður bara í sólinni á næstunni:D

Ekki leiðinlegt :haha:

Later ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:30:31 / Fjóla

Sigur og eilíf hamingja

Við í KR vorum að vinna Val áðan 4-3 í leik um Reykjavíkurtitilinn ... djöfull var það ljúft, setti 4ða markið! Semsagt 2 mót og 2 titlar, maður gæti hreinlega bara vanist þessu hehe. Manni er farið að langar á djammið, svei mér þá. En um helgina eru mikilvægar æfingar sem maður þarf að vera í standi fyrir þannig að það er ekkert rugl á mínum bæ:haha: 

Já ætli maður komi ekki með þá "frétt" síðan úr síðustu færslu. Ég er semsagt ekki að fara til Noregs, það voru ýmsar ástæður fyrir því en ég get alveg viðurkennt að þetta var mjöög freistandi því allt þarna úti var alveg hreint æðislegt ... ég vona að ég eigi einhvern tímann eftir að fara þangað og þar sem var svona frábær skóli í bænum þá er aldrei að vita hvað maður gerir með það!!

Svo er bara afmæli manns á morgun ... bíð familyunni í hádegismat þar sem æfingin er um kvöldið og önnur á sunnudagsmorgun kl.9 ... svo gerir maður eitthvað annað skemmtilegt þegar tími gefst til:haha:

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 00:19:30 / Fjóla

Tilviljun eða hvað ??

Ég prófaði að fara inn á spamadur.is og skrifaði KR eða Grand Bodo og þetta kom ... ekki einu sinni heldur 2var ... er það tilviljun eða hvað :$

9 sverð

Ekki leyfa hindrunum fortíðar að eyðileggja annars góðar stundir sem atburðir nútíðar hafa upp á að bjóða.

Ef þú átt erfitt með að flýja reynslu fortíðar er þér ráðlagt að taka á honum stóra þínum og eyða ímynduðum hindrunum sem kunna að standa í vegi þínum.

Þú átt það til að taka nærri þér skoðanir annarra en það tefur aðeins fyrir þér og velferð þinni. Kvíði virðist einkenna líðan þína varðandi framhaldið en þér er bent á að þú ert fullkomlega fær um að hreinsa allar hindranir úr vitund þinni.

Neikvæðni felur eingöngu í sér frækorn eigin tortímingar og það veistu reyndar. Þú uppskerð alfarið í samræmi við trú þína.

Já maður spyr sig ...

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 19:34:58 / Fjóla

Boltahugleiðingar

Heyrðu já ... Noregsferðin var eiginlega betri en ég átti von á (maður má nú ekki vera of bjartsýnn fyrir þá verða frekar vonbrigði);) Nú er málið bara í vinnslu og veit ég á næstu dögum hvað ég mun gera, verð eiginlega að viðurkenna að maður er alveg frekar spenntur fyrir að prófa þetta. Landið og veðrið er bara eins og á Íslandi, fólkið, æfingarnar og aðstæður voru mjög fínar ... ein æfingin sem ég fór á svipaði soldið til minnar fyrstu æfingu með Haukum á sínum tíma (þeir sem skilja þetta vita hvað ég meina)!:haha:

                                              

Við í KR erum búnar að spila 2 leiki, við Fjölni 8-1 og ÍR 18-0 ... er ekki alveg að skilja af hverju ÍR er svona æst í að komast upp í úrvalsdeild en það er þeirra hausverkur:$

Svo er Hlín vinkona bara búin að festa nafn sitt á blað við sinum fyrstu íbúðarkaupum, til hamingju með það bæði tvö ... þetta er svo skemmtilegt! ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Myspaceið mitt
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012